Skíđavertíđin hefst í Austfirsku Ölpunum PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 06 desember 2007
oddskard.jpgAustfirsku Alparnir opna fyrir skíðaunnendur í dag. Undanfarið hefur snjóað mikið í Oddsskarði og komin nægur snjór til að opna þar lyftu eitt,byrjendalyftan fer svo í gang fljótlega. Í gilinu er komin um tveggja metra snjódýpt og að sögn Dagfinns forstöðumanns skíðasvæðisins í Oddskarði er útlit fyrir góðan skíðavetur. Ef snjó fer að vanta þá er skíðamiðstöðin vel tækjum búin og getur framleitt þann snjó sem uppá vantar í vetur. Í dag er skíðasvæðið opið frá klukkan 17-21, á svæðinu er smá éljagangur en fínt veður og gott skíðafæri.

Vakin er athygli á því  að fram að 15.desember er afsláttur á vetrarkortum og eru þau seld í skálanum. Upplýsingar um opnun og veður er hægt að nálgast á vefsíðu skíðasvæðisins www.oddsskard.is eða í símsvara 8781474.

Einnig eru nánari upplýsingar um verð og opnunartíma hér.


Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 10 apríl 2008 )
 
< Fyrri   Nćsti >
feed image