| Hérađsmenn fögnuđu mikiđ |
|
|
|
| mánudagur, 07 janúar 2008 | |
|
Á vef KFF, Knattspyrnufélags Fjarðabyggður kemur fram að um helgina áttust Höttur og KFF við í æfingaleik í annað skiptið á skömmum tíma. Fyrir jól vann KFF 3-1 en um helgina varð niðurstaðan jafntefli 2-2. Var leikurinn "lokaatriðið" á mjög erfiðri æfingahelgi og bar spilamennskan þess merki gegn ungu og fersku Hattarliði. KFF réð gangi mála fyrsta klukkutímann og hafði 2-0 forystu en síðasta hálftímann hafði Höttur betur og jafnaði leikinn. Athygli vakti að Héraðsmenn fögnuðu mikið í leikslok eins og um úrslitaleik hefði verið að ræða - en þeir hafa jú ekki unnið KFF síðan 2003 og eru æfingaleikir þar með taldir. Annars stóðu ungu strákarnir í Hetti sig vel og allt gott um það að segja segir á heimasíðu KFF.
Mynd: Óliver Ingvarsson, íþróttamaður Hattar 2007, var fjarri góðu gamni. /Austurglugginn, Gunnar Gunnarsson. |
|
| Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 10 apríl 2008 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|