| Austurþing á Höfn |
|
|
|
| þriðjudagur, 04 mars 2008 | |
|
Þingið er hið þriðja í röð landshlutaþinga sem Framtíðarlandið stendur fyrir í vetur. Vesturþing var haldið í nóvember í fyrra og Reykjanesþing var haldið núna í febrúar. Á þessum þingum er áherslan lögð á nýsköpun í atvinnumálum og umhverfisvæna framtíðarsýn. Á Austurþingi kemur saman hugmyndaríkt og kraftmikið fólk úr atvinnulífi, menningu og nýsköpun. Fyrirlesarar eru ýmist heimamenn eða utanaðkomandi en allir eiga þeir það sameiginlegt að láta sig framtíð landsbyggðarinnar varða, þ.m.t. atvinnumál, menntun og almenn lífsgæði. Þingið er öllum opið og hægt er að skrá sig á það með því að senda tölvupóst á netfangið aeh6@hi.isÞetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða hringja í síma 864-3444. Dagskrá: Meira Austurland! Austurþing Framtíðarlandsins og Nýheima
Ráðstefnusalur Nýheima, Höfn í Hornafirði Þingstjóri er Þorvarður Árnason 9.00–9.30 Skráning 9.30–9.45 Þingstjóri setur þingið, ávarp bæjarstjóra 9.45–11.15 Morgunþing: Nýheimar — Tákn nýrra tíma?
1) Kynning á Nýheimum — saga, hugmyndafræði, árangur
Ari Þ. Þorsteinsson, forstöðumaður Frumkvöðlaseturs Austurlands
11.30–12.00 Draumalandið — sýnishorn úr nýrri mynd Andra Snæs Magnasonar Hádegisverður 12.00–13.00
14.20–15.20 Þankahríð í vinnuhópum 15.20–15.30 Kaffihlé
15.30–16.30 Hringborðsumræður Hvatt er til þess að allir gestir þingsins taki þátt í hringborðsumræðum ásamt álitsgjöfum. 16.30–17.00 Lokaorð Irmu Erlingsdóttur, formanns Framtíðarlandsins, og þingslit Humarveisla með menningarlegu ívafi hefst kl. 18:00. Fyrirkomulag hennar verður kynnt nánar á þinginu. |
|
| Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 september 2008 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|