Körfubolti: Hannibal enn í góđu formi PDF Prenta Rafpóstur
miđvikudagur, 05 mars 2008

hannibal.jpg

Höttur tók á þriðjudag á móti liði FSU, Fjölbrautaskóla Suðurlands í íþróttahúsinu á Egisstöðum. Eftir að Höttur hafði verið yfir í hálfleik sigldu FSU-menn yfir Hött í rólegheitum og sigruðu sannfarandi 80-93. FSU er í öðru sæti deildarinnar en Höttur í áttunda sæti eftir leikinn.
Þó að Hattarliðið hafi valdið vissum vonbrigðum í vetur spiluðu þeir ágætis leik og virtist betri stemming í liðinu en oft áður í vetur. Hannibal Guðmundsson 39 ára leikmaður Hattar hitti vel í fyrri hálfleik og virðist vera í fínu formi þrátt fyrir að vera langelsti leikmaður liðsins. Hann hefur spilað með Hetti meira eða minna frá því liðið sendi fyrst lið til þáttöku í Íslandsmótinu. Áður spilaði hann með liði ÚÍA og Grindavík.
Stigahæstir í liði Hattar gegn FSU voru þeir Everard Bartlett, Ben Hill, Milos og Hannibal Guðmundsson.

 

 

Mynd: Hannibal Guðmundsson er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að vera 39 ára gamall.

Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 23 september 2008 )
 
< Fyrri   Nćsti >
feed image