Tveir austfirskir í landsliðshópnum PDF Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 18 mars 2008

Eskfirðingarnir Stefán Gíslason og Eggert Gunnþór Jónsson eru í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar sem mætir Slóvökum í æfingaleik 26. mars næstkomandi.

Egilsstaðabúinn Hjálmar Jónsson sem spilar með IFK Gautaborg er ekki í hópnum, ekki er vitað hvort til hans var leitað en hann hefur ekki verið á leikmannalista Gautaborgar í undanförnum æfingaleikjum. Sem áður gefur Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson leikmaður Reading ekki kost á sér í íslenska landsliðið. Hornfirðingurinn Ármann Smári Björnsson er ekki í hópnum.stefan_gislason_33335e.jpg

 

 


Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 september 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image