| 3,5 milljónir til Austurlands í ferðastyrki |
|
|
|
| þriðjudagur, 18 mars 2008 | |
|
Í dag var kunngjört um styrkúthlutanir úr Ferðasjóði íþróttafélaga. Við sama tækifæri var gerður samningur við menntamálaráðuneytið um fjármögnun sjóðsins, en ÍSÍ mun sjá um umsýslu hans. Ferðasjóðnum er ætlað að jafna aðstöðumun og efla íþrótta- og forvarnastarf. Alls sóttu 138 íþróttafélög um rúmar 260 milljónir úr sjóðnum vegna ferðakostnaðar, en til úthlutunar voru 30 milljónir króna. Úthlutunin átti að fara fram í lok janúar en dráttur hefur orðið á úthlutuninni. Ekki er tilgreint í tilkynningu frá ÍSÍ hvaða íþróttafélög hljóta hæstu ferðastyrki, hins vegar er tilgreint um heildarstyrkupphæðir til félaga innan héraðssambanda. Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) fékk stærsta styrkinn rúmar 8 milljónir. ÍBV, Íþróttabandalag Vestmannaeyja fékk 3,7 milljónir, UÍA, Ungmenna – og Íþróttasamband Austurlands fékk 3,5 milljónir og Íþróttabandalag Reykjavíkur fékk 2,7 milljónir. Önnur héraðssambönd fengu talsvert lægri styrki, allt frá 7 þúsund krónum að rúmri milljón. Ferðir vegna knattspyrnuiðkunar voru styrktar um 14 milljónir í heildina, eða tæpan helming af úthlutuðum styrkjum. Til handknattleiksferðalaga fóru 7 milljónir. Minna en 10 þúsund krónur fóru til ferðastyrkja vegna skotfimi, hestaíþrótta, borðtennis og siglinga. Nánari skipting innan héraðssambandanna liggur ekki fyrir. Mynd: Kvennalið Þróttar varð bikarmeistari í blaki um helgina. (Austurglugginn/GG) |
|
| Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 september 2008 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|