|
Stór skíđahelgi í Stafdal og Oddsskarđi |
|
|
|
|
miđvikudagur, 19 mars 2008 |
|
Stærsta skíðahelgi ársins er framundan. Á Austurlandi eru tvö skíðasvæði. Stafdalur og Oddsskarð. Bæði skíðasvæðin eru með atburði um helgina sem er ætlað að draga skíðaiðkendur alls staðar af landinu að.
Spáin fyrir helgina er ágæt, þótt á morgun (skírdag) sé spáin ekkert sérstök. Á föstudag, laugardag og sunnudag spáir Veðurstofan sól og frosti.
Í Stafdal er búið að setja upp leikjabraut þar sem gestir geta spreytt sig, og fyrir neðan skíðasvæðið er snjósleðabraut þar sem vélsleðamenn geta látið gaminn geysa. Á páskadag verður farið í páskaeggjaleit og sama dag verður “Border Cross” brettamót. Einar Bragi Bragason, umsjónarmaður í Stafdal, segir skíðafæri gott og nægur snjór sé á lager. “Svo hefur gönguskíðafólk magnaða aðstöðu, þar sem troðnar eru brautar nánast um alla Fjarðarheiði.” Segir Einar Bragi.
Í Oddskarði er Alpahátíðin svokallaða í undirbúningi og stendur yfir páskana. Tíróla- og brettaveisla verður í algleymingi þar þessa helgi. Sérstakt brettakvöld verður haldið þar sem hljómsveitin Á Móti Sól mun spila undir. Einnig er von á tríói alla leið frá Tíról og spila á Tírólakvöldinu, og svo á Tírólahátíð í Valhöll fram á nótt. Góður snjór er í brekkunum í Oddsskarði og nægur snjór.
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 23 september 2008 )
|