Athyglisverð niðurstaða PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
fimmtudagur, 22 maí 2008

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshérað, segir niðurstöðu Héraðsdóms Austurlands í máli hesthúsaeigenda á Egilsstöðum athyglisverða. Sveitarfélagið hafi verið sýknað af öllum stefnukröfum hesthúsaeigenda en dæmt til að bæta áætlað verðmæti efnisins í húsunum.

 

ImageSveitarfélagið Fljótsdalshérað var í vikunni dæmt til að greiða eigendum hesthúsa sem stóðu í Votahvammi og rifin voru í fyrra alls ríflega tvær milljónir króna í skaðabætur.

„Niðurstaða héraðsdómarans er mjög athyglisverð, svo ekki sé fastar að orði kveðið, miðað við að sveitarfélagið er sýknað af öllum stefnukröfum hesthúsaeigenda,“ segir Eiríkur. „Það er á móti dæmt til að greiða bætur því það afhenti hestamönnum ekki efnið úr húsunum heldur fargaði því. Sveitarfélagið gerði það til að valda eigendum ekki frekara tjóni með að leggja mikinn kostnað í að láta rífa húsin með handafli.“

 

Það var árið 2003 sem eigendum hesthúsanna var tilkynnt að þeir þyrftu að yfirgefa svæðið. Reynt var að ná sáttum um brottför þeirra en það tókst ekki.

„Sveitarfélagið hafði boðið hesthúsaeigendum allt frá árinu 2003 að fjarlægja húsin sjálfir og allt fémætt af staðnum svo það gæti framfylgt dómi Hæstaréttar um að húsin skyldu fjarlægð.

Lögmaður eigenda lýsti því yfir strax árið 2005 að húsin yrðu tilbúin til niðurrifs ef bætur yrðu greiddar. Krafa um að efnið yrði bætt eftir niðurrif kom hvergi fram í dómkröfum og dómurinn því sérstakur.

Sveitarfélagið var dæmt til að bæta áætlað verðmæti efnisins í húsunum, þótt hesthúsaeigendum hafi margítrekað verið boðið að fjarlægja sín hús eða hvað sem þeir vildu hirða úr þeim árin 2003-20007, án þess að þeir aðhefðust nokkuð og lágmörkuðu eigið tjón.“

 

Eiríkur segir sveitarfélagið ekki hafa ákveðið hvort það áfrýjar dómnum. Hann verður tekinn fyrir í bæjarráði næsta miðvikudag.


Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 september 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image