HSA: Ríflega 250 milljóna króna niðurskurður á árinu PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
föstudagur, 26 júní 2009
Síðast uppfært ( föstudagur, 26 júní 2009 )
 

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur verið gert að skera niður um 55-60 milljónir króna í viðbót við áður fyrirhugaðan 200 milljóna króna niðurskurð ársins. Tímabundinna lokanna má vænta á ákveðnum starfsstöðum. Öll bráða- og neyðarþjónusta verður starfrækt áfram.

 

ImageSamkvæmt fjárlögum ársins 2009 var Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) gert að draga saman í rekstri um um það bil tvö hundruð milljónir króna, sem er um 10% af ársveltu. Heilbrigðisráðuneytið hefur farið fram á 55-60 milljóna króna aukasparnað í ár. Það kallar á sparnað í launakostnaði, sem er um 80% af útgjöldum stofnunarinnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. „Óskað hefur eftir fundum með forsvarsmönnum nokkurra stéttarfélaga á starfsvæði stofnunarinnar til þess að gera þeim grein fyrir þessari alvarlegu stöðu, og óskað eftir  samstarfi og skilningi á þeim ákvörðunum sem taka þarf.“

Í ársbyrjun var farið yfir allar deildir, starfsvið og starfstöðvar í leit að sparnaðarleiðum sem hefðu sem minnsta þjónustuskerðingu eða fæstar uppsagnir starfsmanna í för með sér. Gerðar hafa verið breytingar á vinnuferlum, hagrætt í innkaupum og öðrum rekstrarútgjöldum. Laun stjórnenda voru lækkuð með samkomulagi. Samningum við lækna var sagt upp og þeir endurráðnir með breyttu fyrirkomulagi og tímabundinni lækkun launa. Á Egilsstöðum og í Fjarðabyggð verða færri læknar í sumar en verið hefur. Með samkomulagi við starfsmenn hefur starfshlutfall sumra verið lækkað, dregið verulega úr sumarafleysingum og reynt að komast hjá yfirvinnu vegna veikinda þar sem það hefur verið hægt.

Færra sumarstarfsfólk þýðir að einstaka starfsstöðvum verður lokað tímabundið, þar á meðal heilsugæslunni í Fjarðabyggð. Bið eftir ýmissi þjónustu kann einnig að lengjast. Þjónusta sérfræðinga, svo sem sálfræðinga, minnkar og dregið verður úr starfsemi skurðstofu Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Öll bráða- og neyðarþjónusta verður starfrækt og ekki ástæða til að ætla að neinum sé stefnt í hættu með samdrættinum.

Í niðurlagi tilkynningar er þjónustuþegum HSA óskað góðrar heilsu, gleðilegs sumars og óskað skilnings á stöðu stofnunarinnar.


Ummæli lesenda  
 

Álitsgjöf

 

Sýna 6 af 6 Ummæli

1. 03-07-2009 11:44

Kurteisi
Af gefnu tilefni eru þeir sem vilja láta í ljós álit sitt á austurglugginn.is beðnir um að gæta orða sinna. Unnt er að koma skoðunum skýrt á framfæri án þess að sýna dónaskap í orðfæri. Þeir taki til sín sem eiga. 
Með bestu kveðju, 
ritstjóri Austurgluggans.
Ritstjóri

2. 02-07-2009 01:24

Sver er á þér kjafturinn Leifur
Ja, hver anskoti. Mikið helvíti ertu farinn að taka upp í þig núna Leifur. Ert þú maður fyrir þeim skrifum sem þú lætur frá þér um Hannes, þekkir þú hann. Ég geri það hins vegar og veit að hann er ekki sá skaðvaldur sem Héraðsmenn halda fram, alla vega þeir sem halda utan um rassgatið á Einari. 
Ég hefði haldið að Héraðsmenn ættu bara að halda utan um sitt og láta okkur Fjarðabyggðabúa um okkar. Þið þarna í efra eigið bara enga samleið með okkur hinum. Alltaf þegar rökstyðja á af hverju stjórnunarstöðvar eigi að vera á Egilsstöðum er viðkvæðið, við erum miðsvæðis og við erum með flugvöll. 
Það er jafn langt frá Egilsstöðum til og frá Reyðarfirði ef það þvælist fyrir einhverjum. Reyðarfjörður er fyrir okkur miðsvæðis og er með hafnir sem ekki eru til á héraði nema í Atlavík og við Lagarfljótsbrúna. 
Eigið ykkar Eyríki þarna á Héraði og látið okkur um þau vandamál sem eru hér niður frá, við eigum einfaldlega ekki samleið.
Ósáttur Fjarðabyggðabúi

3. 29-06-2009 23:18

glæpastarfsemi
Það er nú gott að Hannes hinn mikli læknir skuli fá laun á meðan það sé verið að rannsaka hann en í raun ætti hann að skila öllu því til baka sem hann hefur verið grunaður um að stela frá ríkinu því glæpamenn eiga ekki að komast upp með svona gjörning
leifur

4. 27-06-2009 09:56

afglapastjórnun
það mætti segja mér að heildarkosnaður við þá afglapastjórnun sem hefur verið hjá hsa á undanförnum mánuðum sé nálægt þeim tölum sem um er rætt í fréttinni t.d erum við búin að vera með tvo topp lækna á launum án vinnuframlags í fleiri mánuði og virist þar engin endir á. svo mætti lengi telja. þvílíkir stjórnunarhæfileikar taka sem betur fer vonandi enda innan skamms tíma og við fáum hæfa stjórnendur ef þetta fyrirkomulag á okkar málum á að vera áfram.
björn grétar sveinsson

5. 26-06-2009 23:20

Niðurskurður og flottræfilhátttur skaðar
Ætli að elítan hjá HSA sé ekki búið að klúðra einum 50 milljónum króna, þegar upp verður staðið í baráttu sinni við Hannes og Sigurgeir. Frábært, Ólafur Ragnar á eflaust eftir að veita Einari Rafni hina íslensku fálkaorðu fyrir vel unninn störf eins og útrásarvíkingunum, sem sett hafa landið á hausinn. Burt með Einar Rafn og Ólaf Ragnar. Báðir toppfígurur, sem mikilvægt er að vera án og skaðað hafa heilbrigt líf og framþróun þjóðarinnar.
Austfirðingur

6. 26-06-2009 22:54

Emírinn hjá HSA
Hvernig stendur á því að emírinn, Einar Rafn Haraldsson í skjóli Sjáfstæðisflokksins, hjá HSA, geti haldið sínu starfi eftir allt hið kostnaðarsama klúður í persónulegu stíði sínu við einkar farsælan og vinsælan lækni Hannes Sigmarsson og íbúa Fjarðabyggðar. ? 
 
Búið er að skora á stjórn HSA, eftir afglöp í starfi, að segja af sér, en hún situr sem fastast í skjóli spillts embættismannakerfis, sem ráða meiru en kjörnir alþingismenn og svokallaðir ráðherrar, sama hvaða flokki þeir tilheyra. Ögmundur heilbrigðisráðherra veldur vonbrigðum, eftir að hann komst til áhrifa. Svona er Ísland í dag, var svona fyrir hrun og líka eftir hrun.  
 
Sami rassinn undir öllum sem til valda koma. Hver getur áttað sig á stefnubreytingum stjórnmálamanna frá því í haust og þar til nú, eftir því hvort þeir voru í stjorn eða stjórnarandstöðu ?
Emil Thorarensen

Sýna 6 af 6 Ummæli

Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2010 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved
< Fyrri   Næsti >

feed image