Lið Menntaskólans á Egilsstöðum er komið áfram í aðra umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, eftir 22-19 sigur á liði Menntaskólans við Sund í gærkvöldi.
Lið ME hafði undirtökin allan tímann og var 18-15 yfir eftir hraðaspurningar. Mótherjarnir mættu vel undirbúnir til leiks enda varð keppnin mjög góð. MS-ingar eru þannig næst stigahæsta taplið keppninnar til þessa.
Fjölbrautarskóli Austur-Skaftafellssýslu var sleginn út af Menntaskólanum á Laugarvatni 20-8. ML-ingar voru yfir eftir hraðaspurningar, 14-6.
Lið Verkmenntaskóla Austurlands mætir Verkmenntaskólanum á Akureyri á mánudagskvöld.
Ummæli lesenda
Álitsgjöf
Sýna 2 af 2 Ummæli
1.
15-01-2010 14:04
Liðið
Góður punktur, þetta eru frá vinstri og eins og þeir kynntu sig í keppninni: Hrólfur Eyjólfsson, Bláargerði 39, Arnar Jón Guðmundsson, Starmýri 1, Álftafirði, Jóhann Atli Hafliðason, Fossárdal, Berufirði. Hrólfur og Arnar Jón voru einnig í liðinu í fyrra.