Banaslys við Egilsstaði PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson   
laugardagur, 13 mars 2010
Banaslys varð á Vallavegi um 10 kílómetrum sunnan við Egilsstaði, við bæinn Ketilsstaði á áttunda tímanum í morgun.

logreglubill3.jpgTilkynnt var um slysið milli klukkan 7 og 8 í morgun.  Fólksbíll fór út af veginum út í skurð við bæinn Ketilsstaði á Völlum. Ökumaðurinn sem var á þrítugsaldri var einn í bílnum, hann var látinn þegar að var komið. Talið er að hann hafi látist samstundis.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins í samvinnu við lögregluna á Egilsstöðum og rannsóknarnefnd umferðarslysa.

Ekki er hægt að birta nafn mannsins að svo stöddu.

 

 

Síðast uppfært ( laugardagur, 13 mars 2010 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image