Bílvelta í Heiđarenda PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Sigurđur Ađalsteinsson   
laugardagur, 13 mars 2010
Fólksbíll valt á veginum um Heiðarenda, á leiðinni frá Egilsstöðum norður á Jökuldal, milli klukkan 19 og 20  í kvöld.   Ökumaður sem í bílnum var ásamt farþega sluppu ómeiddir, en bíllinn varð óökufær við veltuna.

logreglan.jpgLögreglan á Egilsstöðum segir að bíllinn hafi snúist út af veginum vegna hálku. Bíllinn sem var mikið skemmdur, ef ekki ónýtur eftir veltuna og var fluttur burt með kranabíl.

Lögreglan á Egilsstöðum beinir því til vegfarenda á Austurlandi að þeir vari sig á hálkublettum sem víða leynast á Héraðinu.

 
< Fyrri   Nćsti >

feed image