| Björn Ingimarsson næsti bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs |
|
|
|
| Skrifað af Gunnar Gunnarsson | |
| mánudagur, 12 júlí 2010 | |
|
Björn Ingimarsson verður næsti bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs. Tilkynnt verður um ráðningu hans á bæjarstjórnarfundi sem hófst klukkan fimm. Björn var áður sveitarstjóri Langanesbyggðar en lét af störfum þar í fyrravor þegar hann bauð sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Síðan hefur hann starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á Akureyri.Björn er fæddur 30. desember árið 1954, stúdent frá MA og hagfræðingur frá háskólanum í Gautaborg. Áður en hann varð sveitarstjóri Langanesbyggðar var hann sveitarstjóri Þórshafnarhrepps og þar áður fjármálastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar. Hann hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja, stofnana og nefnda á vegum sveitarfélaga. Björn er kvæntur Sigrúnu Jónu Óskarsdóttur förðunarfræðingi og eiga þau sex börn. |
|
| Síðast uppfært ( mánudagur, 12 júlí 2010 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|