| Borgarholtsskóli sló VA út í Gettu Betur |
|
|
|
| Skrifađ af Garđar Eđvaldsson | |
| fimmtudagur, 26 janúar 2012 | |
|
Gettu Betur lið Verkmenntaskóla Austurlands var slegið úr keppni í miður spennandi keppni á móti liði Borgarholtsskóla í kvöld.
Í fyrstu umferð Gettu Betur þetta árið atti lið Verkmenntaskóla Austurlands kappi við lið Fjölbrautarskóla Suðurnesja í æsispennandi keppni. Hún endaði í bráðabana þar sem lið VA sló út lið FS á hetjulegan hátt í stöðunni 10-9. Annað mátti segja um 2. umferð þar sem lið VA keppti við lið Borgarholtsskóla. Ef sú umferð hefði verið VA í vil hefði leiðin legið beint upp í Efstaleiti þar sem 3. umferð Gettu Betur er haldin, en svo var ekki. Lið Verkmenntaskólans sá aldrei til sólar í viðureign sinni við lið Borgarholtsskóla, en keppnin fór 20-7 Borgarholtsskóla í vil. Lið Borgarholtsskóla er því komið áfram í sjónvarpið en lið VA situr eftir með sárt ennið. Í liði Verkmenntaskólans voru þau Húnbogi Gunnþórsson, Katrín Hulda Gunnarsdóttir og Guðjón Björn Guðbjartsson. Fyrir áhugasama má þess geta að lið Menntaskólans á Egilsstöðum keppir við lið Menntaskólans í Hamrahlíð næstkomandi þriðjudag á Rás 2. |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|