Discovery myndaði lunda á Borgarfirði PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
fimmtudagur, 16 júní 2011
discovery_bfj.jpg
Tökulið frá sjónvarpsstöðinni Discovery Channel var á Borgarfirði um seinustu helgi til að mynda lunda. Upphaflega stóð til að lundinn yrði myndaður í Vestmannaeyjum en Borgarfjörðurinn þótti betri tökustaður.
 
Frá þessu er greint á borgarfjordureystri.is. Á vegum stöðvarinnar komu tvær ungar, breskar konur til Borgarfjarðar í gegnum Íslandsstofu.

Upphaflega stóð til að þær færu til Vestmannaeyja en ekki var talið að tryggt að þær næðu að mynda lunda þar.

Á vefnum segir að stelpurnar hafi ráðið sér fyrir kæti þegar þær komu út í höfn og sáu hundruðir lunda sitjandi í hólmanum.
 

 
< Fyrri   Næsti >

feed image