|
Eldsupptök sennilega í kaffivél |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson
|
|
sunnudagur, 30 maí 2010 |
|
Talið er að eldsupptök í Fellabakaríi í morgun megi rekja til kaffivelar eða einhvers rafmagnstækis í kaffistofu á efri hæð fyrirtækisins.
Að sögn Baldurs Pálssonar slökkvuliðsstjóra, ,,má leiða líkur að, að kviknað hafi í út frá enhveju rafmagnstæki á efri hæð hússins í kaffistofu, sennilega kaffivél".
Húsið er mikið brunnið á efri hæð, sem var á frílofti í hluta hússins, þar sem voru kaffistofa og skrifstofur. Aðrar skemmdir af völdum elds í húsinu voru ekki miklar nema gólfið í efri hæðinni var mikið brunnið.
Ekki komst eldur svo teljandi sé í vélasal hússins vegna þess að eldvarnaveggur nálægt miðju húsinu, milli skrifstofu og vélasalar hélt. Ekki urðu heldur skemmdir af völdum elds svo teljandi væri í verslun sem er staðsett í hinum enda hússins en skrifstofuloftið erm milli vinnslusalarins og búðarinnar.
Miklar skemmdir urðu hins vegar af reyk, sóti og vatni í þeim hlutum hússins sem eldurinn náði ekki til og ljóst að ekki verður bakað í húsinu á næstunni, en Fellabakarí er eina bakaríið á Mið Austurlandi.
|
|
Síðast uppfært ( sunnudagur, 30 maí 2010 )
|