Erna dæmd úr leik PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
mánudagur, 15 mars 2010

Erna Friðriksdóttir, sem í gær keppti í sitjandi flokki í svigi á vetrarólympíuleikum fatlaðra í Vancouver í Kanada, var dæmd úr leik eftir keppnina.

 

ImageFrá þessu er greint á vef Íþróttafélags fatlaðra. „Á fundi liðsstjóra eftir svigkeppnina í gærkvöldi var staðfest að tveir keppendur hefðu verið dæmdir úr leik fyrir að sleppa hliði í seinni umferð. Annar þessara keppenda var Erna sem hafði verið skráð í 11. sæti eftir tvær umferðir.

Erna sýndi mikla þrautseigju í svigkeppninni og vakti mikla athygli áhorfenda fyrir einstakan baráttuvilja. Hún ætlaði sér að klára keppni og komast í mark þrátt fyrir fall á erfiðum stað í brautinni og gerði einmitt það en var því miður dæmd úr leik.“

Erna keppir í stórsvigi á morgun, þriðjudag.


Síðast uppfært ( mánudagur, 15 mars 2010 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image