Fljótsdalshérað leysir til sín byggingar Egilsstaðaskóla PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Einar Ben   
fimmtudagur, 25 febrúar 2010
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 25 febrúar 2010 )
 

Samstarfi Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. (EFF), og Fljótsdalshéraðs vegna byggingar Grunnskólans á Egilsstöðum er lokið. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Fljótsdalshéraðs í gær.

 

grunnskolabygging_egs_web.jpgBæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samstarfi Fljótsdalshéraðs og EFF ljúki þar sem félagið hefur ekki náð að standa undir fjármögnunbyggingarinnar. Samkvæmt tillögu bæjarráðs verður bæjarstjóra, fjármálastjóra og lögfræðingi sveitarfélagsins falið að ganga til samninga við EFF um lok verksins.

Fljótsdalshérað er hluthafi í EFF og situr Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs í stjórn félagsins. Allt frá því að bygging Grunnskólans á Egilsstöðum hófst hefur EFF verið í vandræðum með fjármögnun verksins. Á fyrstu stigum fjármagnaði sveitarfélagið verkið fyrir EFF þegar félagið gat ekki staðið við gerða samninga. Nú, tveimur árum síðar, er ljóst að EFF virðist í miklum vandræðum með fjármögnun, þrátt fyrir að vera í helmingseigu Íslandsbanka. Framtíð EFF virðist því vera óráðin og ekki virðist ólíklegt af þessu að dæma að félagið standi frammi fyrir fleiri slíkum gerningum, af hálfu annarra sveitarfélaga.

Á fundi bæjarráðs í gær var einnig samhljóða lagt til við bæjarstjórn að taka tilboði Íslandsbanka um langtímafjármögnun vegna skulda bæjarsjóðs.


Ummæli lesenda  
 

Álitsgjöf

 

Sýna 2 af 2 Ummæli

1. 25-02-2010 16:28

Ætli "svörin" breytist?
Ég spurði í Austurglugganum fyrir all nokkru eða á síðasta ári hvað kostnaður sveitarfélagsins væri orðin við grunnskólabyggingu, og hvað hann hefði hækkað mikið við hrun bankanna. Svarið var að allar áætlanir stæðust og hefðu staðist.  
Ekki hefur það nú alveg verið sannleikanum samkvæmt ef þessi frétt er rétt, sem rituð er hér fyrir ofan. Og verður fróðlegt að sjá svör við spurningum "dýra"
Sigurlaug Gísladóttir

2. 25-02-2010 13:29

Skuldastaða Fljótsdalshéraðs.
Nú þegar ljóst er að ævintýrið með skólann er komið endanlega í fang sveitarfélagsins er ein stór spurning sem svar verður að fást við strax. Hverjar eru heildarskuldir Fljótsdalshéraðs þ.e bæði A og B hluta nákvæmlega og hverjar eru skuldbindingar utan efnahagsreiknings þ.e skuldbindingar vegna leigugreiðslna. Þegar ársreikningur ársins 2005 er skoðaður er skuldastaða A og B hluta um 2,5 miljarðar. Í endurskoðari áætlun 2010 er gert ráð fyrir því að skuldir verði um 5,5 miljarðar. Þess fyrir utan eru án efa skuldbindingar sem ekki er um getið í þeirri áætlun. 
Eftirlitsstofnun um fjármál sveitarfélaga ku hafa Fljótsdalshérað til skoðunar og væri æskilegt að upplýst yrði um gang mála. Hvernig á að ganga til sveitastjórnarkosninga ef ekki verð gerð grein fyrir stöðunni og allt sett uppá borð? Er hér kannski skýringin á því hversu margir sveitastjórnarmenn eru að hætta þ.e þeir vilja ekki fást við þann vanda sem blasir við. Það hlýtur að vera skýlaus krafa að íbúar séu upplýstir um stöðu mála á opnum fundi um fjármál sveitarfélagins, en það er kannski ekki við því að búast í "opnu og gegnsæu" stjórnkerfi.
dyri

Sýna 2 af 2 Ummæli

Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2010 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved
< Fyrri   Næsti >

feed image