|
Héraðslistinn, 20 þátttakendur í forvali |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson
|
|
fimmtudagur, 18 mars 2010 |
|
Samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði, Héraðslistinn, efna til opins forvals, vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí næstkomandi. Forvalið fer fram dagana 25-27 mars.
Kosningarétt hafa allir þeir sem eru á kjörskrá og eru orðnir 18 ára. Forvalið fer þannig fram að kjósandinn raðar frambjóðendum á lista frá 1 til 9. Seðill er gildur þó merkt sé við færri en ógildur ef merkt er við fleiri.
Kosið verður í Kaupvangi 5.
Forvalið verður ráðgefandi fyrir félagsfund og uppstillingarnefnd. Við endanlega uppröðun verður meðal annars tekið mið af kynjahlutfalli og búsetu.
Niðurstöður forvalsins verða birtar á vef Héraðslistans.
Þáttakendur eru:
| Guðmundur Ólason |
Hrólfsstöðum Jökuldal |
Gefur kost á sér í forustusveit L-listans. |
| Kristín María Björnsdóttir |
Egilsstöðum |
Ótilgreint sæti. |
| Sigrún Blöndal |
Egilsstöðum |
Eitt af þremur efstu sætum listans. |
| Þorbjörn Rúnarsson |
Egilsstöðum |
Ótilgreint sæti. |
| Ruth Magnúsdóttir |
Egilsstöðum |
Frá sjötta sæti listans. |
| Tjörvi Hrafnkelsson |
Egilsstöðum |
Fyrsta til þriðja sæti listans. |
| Aðalsteinn Ásmundsson |
Egilsstöðum |
Ótilgreint sæti. |
| Árni Ólason |
Egilsstöðum |
Ótilgreint sæti. |
| Árni Kristinsson |
Egilsstöðum |
Fyrsta til fjórða sæti listans. |
| Ásmundur Þórarinsson |
Vífilsstöðum Hróarstungu |
Ótilgreint sæti. |
| Baldur Pálsson |
Fellabæ |
Sækist ekki eftir sæti í bæjarstjórn en vil vera öflugur bakhjarl listans. |
| Guðný Drífa Snæland |
Teigabóli Fellum |
Sækist eftir sæti neðarlega á lista. |
| Helga Hreinsdóttir |
Egilsstöðum |
Gef kost á mér neðarlega á lista, ekki í forystusveit. |
| Ireneusz Kolodziejczyk |
Fellabæ |
Ótilgreint. |
| Íris Randversdóttir |
Egilsstöðum |
Ótilgreint. |
| Ragnhildur Benediktsdóttir |
Egilsstöðum |
Ótilgreint. |
| Ragnhildur Rós Indriðadóttir |
Fellabæ |
Fjórða til fimmta sæti listans. |
| Skúli Björnsson |
Hallormsstað |
Fjórða til áttunda sæti listans. |
| Edda Egilsdóttir |
Fellabæ |
Ekki forustuliðið getur vel sér að taka þátt í nefndarstörfum. |
| Þorsteinn Bergsson |
Unaósi Útmannasveit |
Fyrsta til annað sæti. |
Sjá nánari upplýsingar um frambjóðendur á www.heradslistinn.is.
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 18 mars 2010 )
|