| Hver á skógræktarstefna Íslendinga að vera? |
|
|
|
| Skrifað af Gunnar Gunnarsson | |
| þriðjudagur, 07 september 2010 | |
|
Undanfarin fjögur ár hefur nefnd á vegum skógræktarstjóra unnið að heildstæðri stefnu í skógrækt á Íslandi, hið minnsta til ársins 2040. Hún hefur nú skilað af sér drögum. „Drögin hafa verið send til fyrirfram ákveðinna umsagnaraðila en í ljósi breyttra tíma, krafna samfélagsins um opna stjórnsýslu og aukin áhrif almennings vill Skógrækt ríkisins einnig bjóða almenningi að senda inn athugasemdir við drögin,“ segir til tilkynningu frá Skógræktinni. Óskað er eftir því að athugasemdir berist með tölvupósti til Þrastar Eysteinssonar, sviðsstjóra hjá Skógrækt ríkisins, fyrir 20. september n.k. Frekari upplýsingar og drögin sjálf má finna á vefsíðu Skógræktar ríkisins, skogur.is. |
|
| Síðast uppfært ( þriðjudagur, 07 september 2010 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|