|
Íbúðalánasjóður eignast 65 íbúðir á Reyðarfirði |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson
|
|
miðvikudagur, 03 mars 2010 |
|
Íbúðalánasjóður eignaðist í dag 65 íbúðir við lokasölu íbúða í Melgerisblokkunum fjórum á Reyðarfirði.
Eftir lokasöluna í dag á Íbúðalánasjóður á nú alls um 180 íbúðir á Austurlandi. 65 íbúðir komu inn til íbúðalánasjóðs á Reyðarfirði í dag eins og áður sagði. Í síðustu viku eignaðist sjóðurinn 56 íbúðir á einu bretti í Kirkjugarðsblokkunum þremur á Egilsstöðum. Fyrir átti Íbúðalánasjóður um 60 íbúðir víðs vegar um Austurland.
Fram kom í máli Guðmundar Bjarnasonar forstjóra Íbúðalánasjóðs í fréttum Ríkisútvarpsins í dag að ekki komi til greina að setja þessar íbúðir á sölu í einu lagi. Nú verði markaðurinn kannaður áður en til sölu kemur og kannað hvort áhugi sé fyrir kaupum á þessum íbúðum.
|