 Hið árlega Ístölt Austurland verður haldið í Egilsstaðavík við Egilsstaði laugardaginn 27. Febrúar næstkomandi. Egilsstaðavíkin liggur við Lagarfljót rétt við Gistiheimilið á Egilsstöðum. Mótið hefur verið fastur liður í vetrardagskránni á Austurlandi undanfarin ár og er mest sótti hestaviðburður á Austurlandi ár hvert. Gestir, jafnt áhugamenn sem atvinnumenn, frá öðrum landshornum hafa undanfarin ár heiðrað Austfirðinga með nærværu sinni, og gert mótin að frábærri skemmtun.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Tölt unglinga Tölt áhugamanna Tölt opin flokkur B-flokkur gæðinga A-flokkur gæðinga Fljúgandi skeið*
Skráningargjöld verða kr. 3.500,- per skráning og greiðast á staðnum. Hægt er að skrá sig á netfanginu freyfaxi@freyfaxi.net
Keppt verður um Ormsbikarinn Eftirsótta í tölti opnum flokki. Sigurvegarar undanfarinna ára eru: 2009 – Tryggvi Björnsson og Júpiter frá Egilsstaðabæ 2008 – Hinrik Bragason og Skúmur frá Neðri Svertingsstöðum 2007 – Daníel Jónsson og Þóroddur frá Þóroddsstöðum 2006 – Guðmundur Björgvinsson og Taktur frá Tjarnarlandi 2005 – Leó Geir Arnarson og Börkur frá Litlu Reykjum
Keppt verður um Skeiðdrekann í A-flokki gæðinga. Sigurvegarar Skeiðdrekans síðustu árin eru: 2009 – Baldvin Ari Guðlaugsson og Freydís frá Steinnesi 2008 – Hinrik Bragason og Smári frá Kollaleiru 2007 – Þórður Þorgeirsson og Ás frá Ármóti (skeið) 2006 – Fjölnir Þorgeirsson og Lukkublesi frá Gýgjarhóli (skeið)
Keppt verður Frostrósina í B-flokki gæðinga. Sigurvegarar Frostrósarinnar hingað til eru: 2009 – Baldvin Ari Guðlaugsson og Sindri frá Vallanesi 2008 – Tryggvi Björnsson og Akkur frá Brautarholti
Athygli er vakin á því að heimamaður hefur enn ekki lyft neinum af höfuðbikurum mótsins!
*mótsstjórn áskilur sér rétt til að fella niður keppni í fljúgandi skeið ef þáttaka verður ekki nægjanleg.
Allar nánari upplýsingar vegna mótsins er að finna á heimasíðu Freyfaxa www.freyfaxi.net og fyrirspurnir má senda á freyfaxi@freyfaxi.net Mynd: Frá Ístölt Austurland í Egilsstaðavík. Ljósmynd: Jónas Gunnlaugsson.
|