Jens Garðar býður sig fram sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
mánudagur, 16 janúar 2012

jens_gardar_stfj.jpgJens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, gefur kost á sér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Kosið verður í embættið á flokksráðsfundi í mars.

 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Jens Garðar sendi frá sér um helgina. Hann hefur gegnt margvíslegum trúnaðrastörfum fyrir flokkinn í gegnum tíðina, þar af í bæjarstjórn frá árinu 2006. Hann leiddi flokkinn í kosningunum 2010.

„Þá vann Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð sinn stærsta sigur frá upphafi og felldi meirihluta vinstri manna í Neskaupstað sem setið hafði samfellt síðan 1946,“ segir í tilkynningunni.

„Ástæða þess að ég býð mig fram til 2. varaformanns er að ég trúi því einlæglega að með því að velja sveitarstjórnarmann til forystu í Sjálfstæðisflokknum þá muni forysta flokksins breikka og betri tengsl skapast við grasrótina.“
 
< Fyrri   Næsti >

feed image