| Jón Björn Hákonarson í fyrsta sćti hjá Framsókn |
|
|
|
| Skrifađ af Sigurđur Ađalsteinsson | |
| laugardagur, 13 mars 2010 | |
|
Jón Björn Hákomarson sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð í dag. Guðmundur Þorgrímsson varð í öðru sæti. Þeir tveir sóttust eftir fyrsta sætinu í prófkjörinu. Kosningu í opnu prófkjöri Framsóknarflokksin í Fjarðabyggð lauk fyrr í kvöld, 593 tóku þátt í prófkjörinu en gild atkvæði voru 582 og 11 ógild. Í síðustu bæjarstjórnarkosningum í Fjarðabyggð, árið 2006 fékk Framsóknarflokkurinn 585 atkvæði eða 25,7%. Þá voru 2930 á kjörskrá en í kosningunum 6. mars síðastliðinn voru 3183 á kjörskrá í Fjarðabyggð.
Úrslit urðu sem hér segir: 1. sæti Jón björn Hákonarson 368 atkvæði í fyrsta sæti. 2. sæti Guðmundur Þorgrímsson 212 atkvæði í fyrsta og annað sæti. 3. sæti Eiður Ragnarsson 331 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti. 4. sæti Snjólaug Guðmundsdóttir 413 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti. 5. sæti Jósef Friðriksson 419 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti. Einn frambjóðandi dró sitt framboð til baka og til jafna stöðu kynja á listanum og í 6. sæti frambiðslistans kemur vegna þess, Svanhvít Aradóttir en hún tók ekki þátt í prófkjörinu.
Eftirtaldir gáfu kost á sér í prófkjörinu: Eiður Ragnarsson í 2. sæti Gísli Þór Briem í 2.-4. sæti Guðmundur Þorgrímsson í 1. sæti Jón Baldursson í 3.-6. sæti Jón Björn Hákonarson í 1. sæti Jósef Auðunn Friðriksson í 2. sæti Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir í 3.-4. sæti Tinna Hrönn Smáradóttir í 5.-6. sæti |
|
| Síđast uppfćrt ( laugardagur, 13 mars 2010 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|