| Lést í umferđarslysi |
|
|
|
| Skrifađ af Gunnar Gunnarsson | |
| ţriđjudagur, 12 apríl 2011 | |
|
Daniel var pólskur að ætt og kom fyrst til Íslands 2008 en flutti hingað 2009. Bíllinn fór út af veginum en óljóst er hvað olli slysinu. Tveir voru í bílnum og gat sá sem lifði slysið af gert lögreglu viðvart. Kaþólsk minningarathöfn var haldin í Norðfjarðarkirkju í gær. Daniel þótti efnilegur knattspyrnumaður og spilaði fjórtán leiki með aðalliði Fjarðabyggðar í fyrrasumar. Í tilkynningu frá félaginu segir að treyja hans með númerinu fjórtán verði „hans um ókomna tíð.“ Daniel var góður leikmaður og félagi. Hann var efnilegur knattspyrnumaður sem átti framtíðina fyrir sér á vellinum. Daniel var hvers manns hugljúfi og þægilegri leikmann var ekki hægt að þjálfa. Hann gerði það sem hann var beðinn um og gerði það óaðfinnanlega.“ Minningarsíða um Daniel Sakaluk á Facebook |
|
| Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 12 apríl 2011 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|