Lokanir á Stöðvarfirði gætu skert heilbrigðisþjónustu PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
fimmtudagur, 02 september 2010

valdimaro_stfj.jpgValdimar O. Hermannsson, yfirmaður heilsugæslunnar í Fjarðabyggð og bæjarfulltrúi, segir að lokanir póstsins og Landsbankans á Stöðvarfirði flæki þjónustu heilsugæslunnar á staðnum.

 

„HSA og Lyfja eru með samning um að Lyfja er með „lítið lyfjabúr,“ afgreiðslu, á heilsugæsluseli HSA á Stöðvarfirði. Fyrirtækin deila sama starfsmanninum, sem er starfsmaður HSA, en afgreiðir lyf frá Lyfju  sem aftur greiðir ákveðna hlutdeild, eða leigu fyrir aðstöðuna.“ segir Valdimar.

Afgreiðslan er opin aðra virka daga en mánudaga. Læknir og hjúkrunarfræðingur eru á staðnum á miðvikudögum.

„Lyfjapakkar hafa borist til Stöðvarfjarðar, eftir þörfum, á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum, með póstinum. Þá hefur verið (hingað til) hægt að senda blóðsýni, og annað til rannsóknar samdægurs með póstinum þegar læknir og hjúkrunarfræðingur eru á  Stöðvarfirði.“

Valdimar segir verið að skoða hvaða lausnir séu í boði en þetta óhagræði fyrir allan rekstur sem haldið sé úti á Stöðvarfirði og geri málin erfiðari.

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 02 september 2010 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image