| Ný plata Miri: Fólk virðist fíla þetta |
|
|
|
| Skrifað af Gunnar Gunnarsson | |
| föstudagur, 27 ágúst 2010 | |
|
Austfirska hljómsveitin Miri heldur útgáfutónleika sína í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld. Hljómsveitarmeðlimir eru ánægðir með þær viðtökur sem breiðskífan Okkar hefur fengið síðan hún kom út í júlí. „Fólk virðist fíla þetta. Við fórum smá túr um landið í sumar og platan virtist alltaf seljast þegar fólk var búið að sjá okkur,“ sagði gítarleikarinn Óttar Brjánn Eyþórsson í samtali við Agl.is. Platan kom út í júlí og hefur síðan fengið mjög góða dóma, bæði í Morgunblaðinu og Iceland Review. „Í dómunum hefur verið komið inn á þætti sem við erum með ánægðir með. Við erum afskaplega þakklátir upptökustjóranum (Curver Thoroddsen) fyrir hjálpina. Hann á stóran þátt í því hvernig platan hljómar.“ Hljómsveitin gaf út litla plötu árið 2005. Óttar segir að síðan hafi hljómsveitin færst „fjær hinu hefðbundna post-rokki,“ stíllinn sé orðinn „harðari, hraðari og fjölbreyttari.“ Tónleikarnir í kvöld fara fram í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík. Húsið opnar klukkan 21:00 og aðgangseyrir er 1500 krónur. Auk Miri koma fram Bergur Ebbi, Snorri Helga og Loja. |
|
| Síðast uppfært ( laugardagur, 28 ágúst 2010 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|