|
Nýr bćjarstjóri: Fljótsdalshérađ hefur alla burđi til ađ vaxa og dafna |
|
|
|
|
Skrifađ af Gunnar Gunnarsson
|
|
laugardagur, 17 júlí 2010 |
|
Björn Ingimarsson, nýr bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segist spenntur
fyrir verkefnunum sem bíða hans. Hann telur ýmis sóknarfæri felast á
svæðinu.
Björn kom austur í gær og ræddi við starfsmenn á bæjarskrifstofunum og fulltrúa meirihlutans. Hann kemur til starfa um miðja næstu viku.
„Mitt fyrsta verk verður að setjast niður með fólki og setja mig inn í það sem er í gangi. Ég hef átt stutta fundi með starfsmönnum og í næstu viku sest ég niður með lykilmönnum til að átta mig betur á stöðunni,“ sagði Björn í samtali við Agl.is.
„Mér líst feiknavel á starfið enda hefði ég aldrei sóst eftir því hefði mér ekki þótt það áhugavert. Fljótsdalshérað er feiknalega fallegt svæði og samfélagið fjölskylduvænt. Þetta er sveitarfélag sem hefur alla burði til að vaxa og dafna.“
|
|
Síđast uppfćrt ( laugardagur, 17 júlí 2010 )
|