|
Nýr umsjónarmaður á Stórhóli |
|
|
|
|
Skrifað af Gunnar Gunnarsson
|
|
þriðjudagur, 09 mars 2010 |
|
Þorsteinn Sigjónsson, bóndi að Bjarnanesi í Hornafirði, hefur tekið
jörðina Stórhól í Álftafirði á leigu með öllum bústofni fram á haust.
Hann tók við allri ábyrgð á búfjárhaldi á bænum um seinustu mánaðarmót.
Yfirvöld hafa gert athugasemdir við aðbúnað á öðru austfirsku
sauðfjárbúi.
Samkvæmt heimildum Agl.is var fyrirhuguð vörslusvipting á Stórhóli vegna ítrekaðra brota ábúenda á dýraverndunarlögum. Eftir vörslusviptingu í janúar voru þar 760 kindur.
Dýralæknar, á vegum Matvælastofnunar og Yfirdýralæknis, fóru í skoðunarferð á Selsstaði í Seyðisfirði í febrúar og gerðu athugasemdir við aðbúnað sauðfjár þar. Yfirdýralæknir staðfesti þetta í svari við fyrirspurn agl.is. Ábúendur hafa bæði fresti til úrbóta og andmæla.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 09 mars 2010 )
|