| Páll Baldursson: Hvađ fá menn međ ađ fćra Hringveginn? |
|
|
|
| Skrifađ af Gunnar Gunnarsson | |
| mánudagur, 06 september 2010 | |
|
Það gerir hann í grein á vef Breiðdalshrepps. Páll segist efins um að menn fái betri þjónustu, hún sé ekki svo góð á þeim vegakafla sem færa eigin veginn á. Hann efast einnig um að vegnúmerið ráði því hvert ferðamenn fari. „Er þá hugsunin að ná þeim örfáu brauðmolum sem dottið gætu inn á framangreindan vegakafla í Breiðdal til sín? Ef svo er þá er það merkilegt í því ljósi að forsvarsmenn þess sveitarfélags á Austurlandi, sem hvað mestan stuðning hafa fengið á liðnum árum, skuli tala hæðst um færslu á þessu umtalaða þjóðveganúmeri. Falleg hugsun gagnvart nágrönnum sínum!“ Páll segist tilbúinn að taka þátt í umræðum um veganúmer aða „aðra hringavegavitleysu“ þegar forsvarsmenn Fjarðabyggðar hafi náð því í gegn að síðasti kaflinn á þjóðvegi eitt hafi verið klæddur. |
|
| Síđast uppfćrt ( mánudagur, 06 september 2010 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|