Rafiðnaðarsamband Íslands veitir myndalega styrki PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson   
laugardagur, 08 maí 2010
Rafiðnaðarsamband Íslands hélt Sambandsstjórnarfund sinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum, síðasta fimmtudag og föstudag 6. og 7 mai.  Í tilefni fundarins úthlutaði styrktarsjóður félagsins myndalegum fjárstyrkjum til góðgerðamála sem alls námu einni miljón króna.

rsi_styrkir.jpgHæsta styrkinn 500 þúsund hlaut Íþróttafélagið Örvar á Fljótsdalshéraði.  Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins á Norðfirði hlutu 250 þúsund.  Áhugahópur um kaup á hjartastuðtæki fyrir fjölnotasalina í Brúarási, Fellabæ og Hallormsstað hlaut 250 þúsund.

Heimasíða Rafiðnaðarsambands Íslands, RSÍ.


Síðast uppfært ( laugardagur, 08 maí 2010 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image