Stöðvarfjörður: Fyrirtækin hafa ekki enn svarað beiðni um viðræður PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
föstudagur, 10 september 2010

stodvarfjordur2.jpgHvorki bankinn né Íslandspóstur hafa enn svarað formlega beiðni bæjarstjórnar Fjarðabyggðar um viðræður um áframhaldandi starfsemi á Stöðvarfirði.

 

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar óskaði, í kjölfar áskorunar íbúafundar á Stöðvarfirði, eftir viðræðum við Íslandspóst og Landsbankann um áframhaldandi starfsemi á staðnum. Hvorugt fyrirtækið hefur enn svarað erindinu formlega.

Helga Jónsdóttir, bæjarstýra, ræddi við Ingimund Sigurpálsson, forstjóra Íslandspósts sem „kvaðst myndu fara með málið fyrir fund stjórnar en ítrekaði jafnframt að Íslandspósti sé þröngur stakkur sniðinn fjárhagslega.“

Svar hefur heldur ekki borist frá Landsbankanum.


Síðast uppfært ( mánudagur, 13 september 2010 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image