| Styrkir til atvinnumála kvenna |
|
|
|
| Skrifađ af Gunnar Gunnarsson | |
| fimmtudagur, 02 febrúar 2012 | |
|
Sérstök ráðgjafanefnd metur umsóknir og er umsóknarfrestur til og með 14.febrúar og mun úthlutun fara fram í apríl. Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (a.m.k. 50%) og stjórnað af konum og skulu fela í sér atvinnusköpun til frambúðar. Um nýnæmi skal vera að ræða og kröfur eru gerðar um að verkefni skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði.
Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar (innanlands og erlendis). Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur). Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun. |
|
| Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 02 febrúar 2012 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|