Tekinn fullur á snjósleða PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
þriðjudagur, 20 júlí 2010

Karlmaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á snjósleða innanbæjar á Seyðisfirði aðfaranótt sunnudags.

 

Snjór er vissulega enn í fjöllum en hvítu kornin voru hvergi nálægt ferðum mannsins. Ekki er víst hversu lengi hann missir ökuleyfið en það gerir hann því ökuréttindi þarf til að stýra vélsleða.

Einn annar var tekinn fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði. Helgin mun samt hafa verið fremur róleg.
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 22 júlí 2010 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image