Telja ekki forsendur til ađ flytja Hringveginn PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Gunnar Gunnarsson   
ţriđjudagur, 06 júlí 2010

vegaframkv_web.jpgBæjarráð Fljótsdalshéraðs telur ekki forsendur til að flytja þjóðveg eitt frá Breiðdalsheiði og Skriðdal niður á Suðurfjarðaveg og Fagradal eins og bæjarráð Fjarðabyggðar vill. Ráðið telur að ávallt eigi að skilgreina Hringveginn sem stystu leið milli landshluta og hvergi verði gefið eftir á öryggiskröfum.

 

Í ályktun ráðsins segir að stytting vegalengda á Hringveginum ætti að stuðla að lægri flutningskostnaði og minni koltvísýringsmengun farartækja. Ráðið er sammála bæjarráði Fjarðabyggðar um að góður vegur sé um Fagradal og heilsársþjónusta á honum mikilvæg fyrir samgöngur á mið-Austurlandi. Ráðið fagnar því háu þjónustustigi á leiðinni. Það sama eigi við um Fáskrúðsfjarðargöng og klæðningu á Suðurfjarðarvegi sem séu góðar samgöngubætur.

Það eigi samt ekki að koma í veg fyrir að önnur byggðarlög á Austurlandi og almennir ferðamenn geti notið sambærilegra samgöngubóta og styttingu vegalengda.

Ráðið skorar á samgönguyfirvöld að vinna áfram að uppbyggingu á þjóðveginum um Skriðdal og Breiðdalsheiði og vegabótum á veginum yfir Öxi. Aukin umferð á þeim vegi sýni hve mikilvæg sú vegstytting sé vegfarendum.

"Frekari samgöngubætur og aukin þjónusta á þeirri leið er því mikið áhersumál bæjaryfirvalda á Fljótsdalshéraði. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs telur því ekki forsendur til að breyta núverandi skilgreiningu Þjóðvegar 1."

Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 06 júlí 2010 )
 
< Fyrri   Nćsti >

feed image