| Ţjóđarvettvangur um Icesave á Austurlandi |
|
|
|
| Skrifađ af Gunnar Gunnarsson | |
| fimmtudagur, 25 febrúar 2010 | |
|
Fundur á vegum Þjóðarvettvangs um Icesave málið verður haldinn á Reyðarfirði á laugardag. Á fundinum verða gildin réttlæti, virðing og heiðarleiki ræddi í tengslum við málið.
Á vefnum www.thjodarvettvangur.is er handbók með leiðbeiningum til að fólk geti sest niður saman í heimahúsum, félagahópum og/eða starfsmannahópum og haldið sína eigin fundi. Þar eru einnig komnar inn setningar frá vettvangsfundum um seinustu helgi. Fundurinn verður í húsnæði Þekkingarnets Austurlands, Búðareyri 1 frá klukkan 09:30 - 12:00 á laugardag. Öll gögn verða áfram aðgengileg á heimasíðunni til frjálsrar notkunar. Aðstandendur fundaherferðarinnar vilja að vettvangurinn sé tiltækur fyrir sambærilega fundi þegar næsta stórmál komi upp. |
|
| Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 25 febrúar 2010 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|