Tveir Austfirđingar í stjórn Bjartrar framtíđar PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Gunnar Gunnarsson   
laugardagur, 04 febrúar 2012

elvar_jonsson2.jpgTveir bæjarfulltrúar úr Fjarðabyggð eru meðal þeirra fjörutíu einstaklinga sem skipa stjórn hins nýja stjórnmálaflokks, Bjartrar framtíðar, sem stofnaður var formlega í dag.

 

Það eru fulltrúar Fjarðalistans, Elvar Jónsson og Stefán Már Guðmundsson sem eru fulltrúar Austfirðinga í stjórninni. Elvar er aðalmaður í bæjarstjórn en Stefán Már varabæjarfulltrúi og hafa verið það frá sveitarstjórnarkosningunum 2010.

Þetta kemur fram í frétt Eyjunnar um aðalfundinn. Í stjórninni eru áberandi fyrrum framamenn í Framsóknarflokknum og Besta flokknum í borgarstjórn Reykjavíkur.

Síđast uppfćrt ( laugardagur, 04 febrúar 2012 )
 
< Fyrri   Nćsti >

feed image