Ţróttur vann Ţrótt en tapađi fyrir HK PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Gunnar Gunnarsson   
ţriđjudagur, 02 mars 2010

Þróttur Neskaupstað sigraði nafna sinn úr Reykjavík í 1. deild kvenna í blaki á föstudagskvöld, 1-3 en töpuðu fyrir HK á laugardag 3-0.

 

ImageÍ fyrri leiknum vann Norðfjarðarliðið fyrstu tvær hrinurnar, 13-25 og 12-25 og þá fjórðu 17-25 á milli þess sem Reykjavíkur liðið vann eina hrinu 25-23. Miglena Apostolova og Helena Kristín Gunnarsdóttir voru stigahæstar með 18 og 16 stig.

Leikinn á laugardag vann HK fyrstu hrinuna 27-25 eftir að Þróttur hafði verið yfir 21-24. Aðra hrinuna vann HK 25-23 og þá þriðju loks 25-11 eftir að einn leikmanna Þróttar hafði meiðst.

HK og Þróttur mætast aftur eftir hálfan mánuð í undanúrslitum bikarkeppninnar í Laugardalshöll.


Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 02 mars 2010 )
 
< Fyrri   Nćsti >

feed image