|
Hildarleik hermanna fyrir 70 árum minnst |
|
|
|
|
Skrifað af Gunnar Gunnarsson
|
|
fimmtudagur, 02 febrúar 2012 |
|
Þann 20. janúar síðastliðinn voru sjötíu ár liðin síðan heimilisfólkið
við Eskifjörð björguðu yfir fjörutíu breskum hermönnum sem farið höfðu
gangandi frá Reyðarfirði yfir fjöllin til Eskifjarðar.
„Þeir lögðu af stað um morguninn hinn tuttugasta í blíðviðri en hrepptu voðaveður, afspyrnurok og úrhelli þegar leið á daginn. Alls voru 69 breskir hermenn í þessari för og létust 9 þeirra,“ segir Jens Garðar Helgason, einn þeirra sem minntust björgunarafreksins nýverið inn við tóftir Veturhúsa.
„Magnúsi Pálssyni, einum þeirra sem stóðu af björgun hermannanna, var boðið í breska sendiráðið, þar sem hann tók á móti viðurkenningu og virðingarvottifrá embættismanni breska hersins. Var hann vel af þeirri þökk kominn enda sýndi hann, systkini hans og móðir fádæma fórnarlund og ósérhlífni við björgun hrakinna hermanna í aftaka veðri.“
Mynd: Pétur Sörensen
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 02 febrúar 2012 )
|