|
Riđa greind á bć á Jökuldal |
|
|
|
|
Skrifađ af Gunnar Gunnarsson
|
|
miđvikudagur, 01 febrúar 2012 |
|
Riða hefur greinst á bænum Merki á Jökuldal. Öllu fé á bænum verður
slátrað á næstunni. Sýni var greint úr kind sem slátrað var í sláturhúsi
í haust.
Frá þessu er greint í frétt á vef Matvælastofnunar. Sýnið var greint í tilraunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum og hefur nú verið staðfest að smitefni riðu hafi fundist í því.
Riðan er af afbrigðinu NOR 98 og er þetta fjórði bærinn á Íslandi þar sem þetta afbrigði finnst. Um 530 kindur eru á bænum og undirbúningur er nú að hefjast vegna nauðsynlegs niðurskurðar á öllu fé á bænum.
Engin kind greindist með sjúkdómseinkenni riðu á síðasta ári. Bærinn Merki er í Héraðshólfi og í því hólfi greindist riða síðast árið 1997.
|
|
Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 01 febrúar 2012 )
|