| Stofnaði stuðningshóp til kaupa á hjartastuðtækjum |
|
|
|
| Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson | |
| fimmtudagur, 18 mars 2010 | |
|
Heiðar Broddason stofnaði á dögunum stuðningshóp á ,,facebook" til kaupa á hjartastuðtæki fyrir fjölnotasalina í Brúarási og Fellabæ. Hugmyndin kviknaði í framhaldi af því að Jónína Sigríður Elíasdóttir fékk hjartastopp á þorrablótinu í Brúarási.
,,Mér datt þetta í hug þegar ég var að lesa greinina á agl.is um Jónínu, eftir að hún hné niður á þorrablóti í fjölnotasalnum að Brúarási. Mér fannst það einkennilegt að hjartastuðtæki væri ekki staðalbúnaður í svona fjölnotahúsi. Reyndar hef ég heyrt það, að þegar eitthvað sé að gerast, til dæmis kringum íþróttahúsið á Egilsstöðum, þá fái viðkomandi keppnishaldarar tæki lánað hjá lögreglunni, sem er slæmt því þá er lögreglan ekki með neitt tæki þann tíma meðan það er í láni.
Núna eru komnir 491 meðlimur í stuðningshópinn sem ég stofnaði á ,,facebook". Það hefur aðeins verið um það að fólk hefði viljað fá fleiri fjölnota íþróttarhús í þennan hóp sem er mjög gott og ég var ekki að hugsa um að úthýsa neinum, tiltók einungis þau sem Jónína sagði frá á agl.is og það er ekkert mál að taka til dæmis Hallormstað í hópinn. Nú er búið að opna reikning í Landsbankanum á Egilsstöðum til að safna fé til kaupa á hjartastuðtækjunum. Reikningsnúmerið er 0175-05-72643 kennitala 100458-7999, ábyrgðarmaður reikningsins er Jón Eiður Jónsson. Ef allir sem eru í stuðningshópnum leggja 1000 krónur inn á reikninginn er þetta langt komið, þá er og eftir að leita stuðnings hjá sveitarfélögum, félagasamtökum og fyrirtækjum. Svona tæki kosta á bilinu 200 til 300 þúsund krónur en ráðgjafi varðandi tækjakaupin, svo sem gerð og stærð tækja, er Gísli Birgir Ómarsson sjúkraflutningamaður. Slóðin á stuningssíðuna á facebook er hér
|
|
| Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 mars 2010 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|