,,Veit aldrei hvar raðmorðinginn er" PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Sigurður Aðalsteinsson   
þriðjudagur, 09 febrúar 2010
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 09 febrúar 2010 )
 

Það á ekki af Kristni Kristmundssyni betur þekktum sem Kiddi í Vídeoflugunni að ganga hvað kattahaldið varðar.  Fyrir um það bil tíu dögum síðan hurfu tveir kettir, læða og ungt afkvæmi hennar að næturþeli. Læðan fannst morguninn eftir á plani um 2 til 300 metrum frá verkstæði Kristins þar sem kettirnir voru haldnir. Læðan var dauð, virðist hafa verið drepin á hryllilegan hátt, en unga kisan hefur ekki sést. 

kiddi_med_kott.jpgForsaga málins er sú að Kristinn tók að sér kettlingafulla læðu fyrir um ári síðan. Læðuna hafði fólk í bænum fundið en gat ekki haft hjá sér, vegna hárofnæmis á heimilinu.  Kristinn fór með læðuna og hlúði að henni á verkstæði sem hann rekur á Egilsstöðum og hefur hún dvalið þar æ síðan. Kettlinginn eignaðist læðan síðan í fyllingu tímans og undu mæðginin þarna saman á verkstæðinu  upp frá því, við gott atlæti Kristins.

,,Henni leið vel hjá mér, svaf í rúmi, fékk vel að borða.  Þetta var greinilega heimilisköttur, var alveg gæf og leyfði öllum að taka sig og halda á sér, gekk sjálf inn og út  af verkstæðinu" segir Kristinn.

,,Það var svo fyrir tíu dögum síðan að kisurnar hurfu að næturlagi, ég var uppi á verkstæði undir miðnætti og kaf kisunum þar, en um morguninn voru þær horfnar.   Frændi minn fann síðan eldri kisuna dauða á plani skammt frá verkstæðinu, í um 200 til 300 metra fjarlægð, þar hafði verið reynt að henda henni í skurð en ekki tekist að henda henni alla leið í skurðinn.  Kisan var alblóðug og ég hélt að hún hefði verið skotin, hún var ekki orðin alveg köld og ég fór strax með hana til dýralæknis sem krufði hana.  Þá kom í ljós að hún hafði ekki verið skotin, hún hafði verið drepin með því að reka eitthvert oddhvasst verkfæri, staf, ör eða rýting í höfuið á henni rétt fyrir aftan eyrað á ská fram og langt inn í heila, ekki þó í gegn.  Dýralæknirinn segir það útilokað að kisan hafi verið skotin og hann leitaði sérstaklega að höglum eða kúlu en fann eingin merki um neitt slíkt" segir Kristinn.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem drepinn er köttur sem Kristinn hefur haldið, árið 2004 var skotinn köttur sem Kristinn átti. Það atvik var kært til lögreglu og það gekk dómur í því máli á sínum tíma, sem vakti nokkra athygli.  Árið 2007 var einnig drepinn köttur sem Kristinn átti, sá var drepinn með eitri. Hann var líka krufinn af dýralækni og sýni send í Keldur, sannað var með óyggjandi hætti að það var eitur sem varð honum að bana. Þeir kettir voru hins vegar báðir drepnir við heimili Kristins. Ekki liggur fyrir um hvaða eitur var að ræða, til þess að komast að því hefði orðið að senda sýni erlendis.  Hins vegar var ljóst að þetta var bráðdrepandi efni og hefði til dæmis getað dregið barn til dauða á um þremur dögum.  Tekið skal fram að ekki hafa fundist nein tengsl milli þessara mála, málinu sem dómurinn gekk í og hinna sem á eftir komu.

,,Það var merkilegt að gömlu brauði hafði verið dreift á planið fyrir utan verkstæðið, eins og lagt hefði verið út æti fyrir kisurnar til að ná þeim.  Dýralæknirinn sagði að kisan hefði greinilega verið drepin og sagði mér að kæra málið strax til lögreglu sem ég og gerði.  Lögreglan hefur hins vegar ekki komist að neinu um málið, né hver var hér að verki. Ég hef nú allar mínar kisur alltaf lokaðar inni og hleypi þem bara út undir bert loft stund og stund undir eftirliti.  Vegna þess að  ég veit aldrei hvar raðmorðinginn er", segir Kristinn Kristmundsson eða Kiddi í Vídeoflugunni eins og hann er jafnan nefndur. kiddi_skinn.jpg

 



Ummæli lesenda  
 

Álitsgjöf

 

Sýna 8 af 8 Ummæli

1. 12-02-2010 19:51

Ljótt og löðurmannlegt
Ótrúlega ljót framkoma gagnvart saklausri kisu og má sá er framkvæmdi skammast sín, og hvers á Kiddi gjalda hann sem bara auðgar líf okkar allra með sinni jákvæðu og glaðlegu framkomu. Því miður virðist þetta vera alltof algengt, frétti af tveimur gæfum og góðum heimilsköttum í dag sem nýlga urðu svona dýraníðingum að bráð, annar fannst í aflífaður í ruslakassa og hinn var drepinn með eitri.
Nafnlaus

2. 11-02-2010 19:53

Bifreiðasali
Ég samhryggist Kidda innilega vegna þessa. Veit hvernig tilfinning það er þegar ráðist er á dýrin manns, búinn að lenda í því með kött sem ég á, skotið eða stungið gat á skottið á honum, tókst að bjarga því með naumindum. Vil leggja sérstaklega ummæli við þessa athugasemd hans Trukkers: Hvað reglur varðar, þá réttlæta þær ekki misþyrmingar á dýrum. Spurning hvort vörubílarnir hafi hlotið varanlega skaða af þessu.. þetta hljómar óneitanlega "kattahatursofstopakennt". Síðan verða menn að hafa manndóm í sér til að skrifa undir nafni ef menn leggja eitthvað til málanna.
Smári Sigurjónsson

3. 11-02-2010 15:48

?
Vinnur þú kannski í prentsmiðjunni Ingvar og ert tengdasonur Þráins prentara?
Ebba

4. 10-02-2010 16:17

dómur
Það var, eftir því sem ég best veit, aldrei sannað að kötturinn, sem átti að vera skotinn, hafi verið skotinn. Dómurinn sem féll var fyrir meðferð skotvopna í þéttbýli. Þeir sem eru að skrifa fréttir ættu að kynna sér málið og fara með rétt mál.
Ingvar

5. 10-02-2010 15:07

trukker
Það er alveg ljóst að Kiddi ætti að lesa reglur um kattahald í bænum. 
Það er ekki leyfilegt að halda fleiri en tvo ketti á heimili. Þessir andskotans kettir hans spruttu í allar áttir þegar maður setti vörubílana í gang á morgnana á næstu plönum.
trukker

6. 10-02-2010 09:30

Níðingur
þetta er níðingsverk karlmanns sem lætur geðveiki sína bitna á saklausum dýrum . Hann hefur ekki manndóm í sér til að tala við eiganda kattarins til að fá úrlausn einhvers vandamáls síns. Ég samhryggist þér Kiddi minn
anna

7. 10-02-2010 02:37

jæja
það verður nú gaman þegar nafnið á þessum manni kemst útí samfélagið...
lesandi

8. 09-02-2010 21:09

Fávitar...
Fólk sem gerir svona lagað, drepur og pyntar dýr sér til skemmtunar á ekkert gott skilið. Það ætti að sprauta rottueitri í heilann á svona liði, ekki á það heima í samfélagi manna, frekar en barnaníðingar og ofbeldismenn sem fá sína fróun úr þjáningum minni máttar.
D

Sýna 8 af 8 Ummæli

Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2010 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved
< Fyrri   Næsti >

feed image