160 kindur teknar á Stórhóli PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Gunnar Gunnarsson   
föstudagur, 29 janúar 2010

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps er með 160 kindur í sinni vörslu sem teknar voru á sauðfjárbýlinu Stórhóli í gærkvöldi. Húsakostur á staðnum var ekki talinn ráða við allar þær kindur sem þar voru.

 

ImageHalldór Runólfsson, yfirdýralæknir, staðfesti í samtali við agl.is að 160 kindur hafi verið teknar. Talið er að fjárhúsin á staðnum rúmi 820 og það sem var umfram þá tölu var tekið.

Sýslumaðurinn framkvæmdi aðgerðina og gaf ábúendum fjögurra sólarhringa andmælarétt. Djúpavogshreppur er með féð í sinni vörslu á bóndabæ í nágrenninu.

Samkvæmt heimildum agl.is er ekki talið útilokað að fleiri kindur frá Stórhóli séu enn á fjalli og kunni að heimtast. Slíkt hafi gerst áður.
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 29 janúar 2010 )
 
< Fyrri   Nćsti >

feed image