Slíðrið sverðin, Austlendingar! PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Vilhjálmur Einarsson   
þriðjudagur, 07 september 2010
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 07 september 2010 )
 

villhjalmur_einarsson.jpgFyrir nokkrum árum bar fundi okkar Steigríms fjármálaráðherra saman í heita pottinum á Egilsstöðum. Hann, hress að vanda, segir: „Þið eruð nú búnir, Austfirðingar, að afþakka öll jarðgöng!“ Ég vildi vita hvað hann ætti við og það stóð ekki á útskýringunni: „Nú, á meðan þið rífist eins og hundar um það hvar eigi að bora, fáið þið ekki neitt.“

Er sagan nú að endurtaka sig, hvað varðar þjóðveg eitt og Öxi? Vonandi ekki, og í þeirri von að samstaða geti náðst eru þessi orð sett á blað.

 

Breiðdalsvík, Stöðvarfjörður og Fáskrúðsfjörður eru meðal alfegurstu staða sem væru við þjóðveg eitt ef hann lægi þar um. Þeim sem ekki vilja fara útaf malbiki með fína bíla sína, svo og innlendum og erlendum ferðamönnum, sem ekkert liggur á, má mjög gjarna beina þessa undurfögru leið, um Suðurfirðina. Þetta yrði lyftistöng fyrir þá menningarstarfsemi og þjónustu, sem þar er að finna og þeir yrðu áreiðanlega ekki margir, sem hörmuðu þá lengingu hringvegar sem slík breyting hefði í för með sér.

Góður, uppbyggður vegur yfir Öxi er líka mikið hagsmunamál, ekki aðeins fyrir Héraðsbúa. Sá vegur þyrfti ekki að vera með bundnu slitlagi því þeir, sem notuðu sér styttinguna, hafa fram að þessu ekki vílað fyrir sér að fara Öxarveg eins og hann er nú. Góður, malarvegur er auk þess öruggari en vegur með bundnu slitlagi í hálku á vetrum. Þetta veit eg af eigin reynslu úr Hvalfirðinum undir Þyrli, þegar „rúgbrauðið“ mitt fauk til hliðar og hefði runnið niður í sjó ef ekki hefði verið malarröst í kantinum. Þar hygg eg að mölin hafi bjargað lífi mínu og fjölskyldunnar.

Við þurfum enga hraðbraut um Öxi, heldur traustan veg, lausan við snarbrattar brekkur, blindhæðir og lykkjur. Slíkur vegur myndi ugglaust spara tíma og minnka ferðakostnað bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Og talandi um öryggi: gæti fjarðaleiðin ekki teppst til dæms af skriðuföllum, og væri þá ekki traustur vegur um Öxi góð varaleið?

Sá, sem þetta ritar hefur alltaf litið á sig sem „Austlending“, enda fæddur í Fáskrúðsfjarðarhreppi, sleit barnsskónum á Reyðarfirði (og að nokkru á Seyðisfirði) og var orðinn 11 ára þegar flutt var í Egilsstaði.

Austlendingar! Stöndum nú saman: Styðjum allir færslu hringvegarins en leggjum jafnframt sameiginlega allt kapp á að gerður verði sem fyrst góður vegur um Öxi.


Ummæli lesenda  
 

Álitsgjöf

 

Sýna 3 af 3 Ummæli

1. 09-09-2010 23:00

Hættum að rífast
Ég tel grundvallar misskilninginn í þessu máli það sem Sigurlaug telur upp hér að ofan - "að þjóðvegur 1 skuli liggja þar sem mest stytting næst á vegakerfi landsins". Og eins " að vera sú leið sem ber okkur sem fljótast, ódýrast og hagkvæmast á milli staða".  
 
Ég tel að þjóðvegur 1 eigi að vera öruggasta leið hringinn í kringum landið á vetri sem og sumri, aðalvegurinn sem merktur er greinilegastur á vegakortum og tengir saman sem flestar byggðir á landsbyggðinni á öruggan hátt. Þetta þarf ekki að vera í neinni andstöðu við það að stytta leiðir á milli staða án þess að færa hringveginn. Ég tel sjálfsagt að fara í vegabætur á Öxi sé það metið samfélagslega hagkvæmt (umferð,stytting,vetrareinangr un,slysahætta,rekstrarkostnaðu r...) en sé ekki ástæðu til þess að hann hljóti vegnúmerið 1. Ef þjóðvegur 1 á að vera stysta leiðin milli Egilsstaða og Reykjavíkur þá skulum við bara láta hann liggja um Gæsavatnaleið og Sprengisand. 
 
Viðhald og þjónusta við vegi fer ekki alfarið eftir vegnúmerinu, það sést greinilega á þjóðvegi 1 um Breiðdalsheiði í dag. Þjónustan á að fara eftir umferðarþunga og mikilvægi vegarins fyrir notendur og samfélagið. 
 
Vegagerðin hefur gefið út að kostnaður við breytingu á vegnúmerinu sé um 20 milljónir vegna að Egilsstaðir eru "fjarstaður" og um allt land þurfi að breyta vegalengdinni þangað á skiltum. En sá kostnaður hlýtur að falla til í hvert skipti sem vegalengdir eru styttar, t.d. þegar Almannaskarðsgöngin voru tekin í notkun, nýji vegurinn í Hamarsfirði og aðrar styttingar víða á hringveginum, og sá kostnaður mun líka falla til ef Öxi fær númerið 1. Best er líklega að gera þetta þegar nýji vegarkaflinn í Skriðdalnum verður tekinn í notkun, hann hlýtur að stytta leiðina um nokkra kílómetra.  
 
Ég tel að sveitarstjórnarmenn á Austurlandi ættu að finna sér eitthvað þarfara að gera en að rífast um veganúmer, ályktið sameiginlega um að færa veg númer 1 niður á firði og berjist sameiginlega fyrir nýjum Axarvegi ásamt öðrum þeim samgöngubótum sem nauðsynlegar eru í þessum landsfjórðungi til að gera daglegar samgöngur öruggari, eins og Norðfjarðar- og Seyðisfjarðargöngum. Breiðdalsheiðina mætti líka bæta en hún stendur engan veginn undir því að kallast þjóðvegur 1, það ættu flestir að geta verið sammála um - vonandi líka Breiðdælingar.
sveinnh

2. 09-09-2010 14:04

Falleg hugsun já ...en nei takk.
Sé mér engan vegin fært að styðja þessa hugmynd Villa enda gengur hún þvert gegn þeim grundvallarsjónarmiðum um það að þjóðvegur 1 skuli l ligga þar sem mest stytting næst á vegakerfi landsins. Ef slíkt fodæmi væri gefið hvort sem það er hér eða á öðrum stöðum hringinn um landið sitjum við uppi með mikinn kostnað bæði hvað varðar vegakerfi, flutning eftir vegum og svo ekki sé talað um aukna gjaldeyrisnotkun vegna eldneytis kaupa sem við þurfum svoa sárlega að minnka en ekki auka því við vitum öll að mesta þjónustan þarf að vera árið um kring þar sem flutningar með vörur um landsbyggðina fara fram, og þá leið þarf að stytta en ekki lengja. Þjóðvegur 1 á að vera sú leið sem ber okkur sem fljótast, ódýrast og hagkvæmast á milli staða, burt séð frá öllu öðrum, þ.e ferðamennsku og öðru slíku eins og hagsmunapoti hvers sveitarfélags fyrir sig.
sillagunna

3. 09-09-2010 13:56

Vel mælt
Sæll meistari. 
Þetta eru orð í tíma töluð, takk fyrir þau.
tobbitenor

Sýna 3 af 3 Ummæli

Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2012 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved
< Fyrri   Næsti >

feed image