Um endurbyggingu gamalla húsa í Fjarðabyggð PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Smári Geirsson   
miðvikudagur, 07 apríl 2010
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 07 apríl 2010 )
 

Í Austurglugganum 26. mars síðastliðinn birtist grein eftir Elmu Guðmundsdóttur þar sem hún gerir meðal annars endurbyggingu gamalla húsa í Fjarðabyggð að umtalsefni. Sérstaklega fjallar Elma um áform um endurbyggingu Franska spítalans á sínum upphaflega stað á Fáskrúðsfirði og endurbyggingu Gamla Lúðvíkshússins í Neskaupstað. Í tilefni af grein Elmu vill undirritaður koma nokkrum mikilvægum upplýsingum á framfæri:

 

smari_geirsson.jpg- Það er hlutafélagið Minjavernd sem áformar að endurbyggja Franska spítalann á Fáskrúðsfirði en Minjavernd er hlutafélag sem er meðal annars í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar. Minjavernd hefur staðið fyrir endurbyggingu og varðveislu húsa allvíða á landinu þó flest verkefni félagsins hafi verið í Reykjavík. Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur engar fjárhagslegar skuldbingar varðandi áformin um endurbyggingu Franska spítalans en hefur samþykkt að koma að málinu hvað varðar skipulag og að leggja til lóð undir húsið á Búðum á þeim stað sem það upphaflega stóð.

Minjavernd hefur það fyrir reglu að hefja ekki framkvæmdir sem þessar fyrr en fjármagn hefur verið tryggt en það er Minjavernd sem vinnur að því að útvega fjármagn til verkefnisins frá Frakklandi. Það er einnig Minjavernd sem vinnur að því að finna húsinu hlutverk að endurbyggingu lokinni.

Á þessu sést að það er engin hætta á því að uppbygging Franska spítalans hafi áhrif á nauðsynleg verkefni sem Fjarðabyggð þarf að sinna eins og byggingu nýs leikskóla í Neskaupstað. Það hefur ítrekað komið fram að alger einhugur ríkir um það innan bæjarstjórnar Fjarðabyggðar að bygging nýs leikskóla í Neskaupstað sé forgangsverkefni og í það verkefni verði ráðist strax og efnahagslegar aðstæður leyfa.


Hvað varðar Gamla Lúðvíkshúsið í Neskaupstað gildir hið sama; Fjarðabyggð er ekki ætlað að kosta endurbyggingu hússins. Síðastliðið haust var stofnað áhugamannafélag í Neskaupstað um endurbyggingu þessa elsta húss bæjarins. Húsið er í eigu Fjarðabyggðar en sveitarfélagið hefur heimilað áhugamannafélaginu að vinna að endurbyggingu þess en þar á meðal er útvegun fjár til framkvæmda.

Áhugamannafélagið hefur þegar hafið útvegun fjármagns og reyndar þegar fengið loforð frá Húsafriðunarnefnd um fjárframlag. Ástæðan fyrir stofnun félagsins var ekki síst sú að mönnum er ljóst að sveitarfélagið hefur mörgum mikilvægum verkefnum að sinna og á því erfitt með að leggja fjármagn í verkefni sem þetta.

- Að mati þess sem þetta skrifar er mikilvægt að stuðlað sé að verndum menningarverðmæta í Fjarðabyggð sem og annars staðar á landinu. Það hlýtur því að vera ánægjuefni þegar hlutafélag eins og Minjavernd vill leggja sitt af mörkum í þessu skyni með endurbyggingu Franska spítalans og þegar áhugafólk tekur sig saman um að vinna að framgangi slíkra mála eins og gerist í sambandi við Gamla Lúðvíkshúsið. Að undanförnu hafa nokkur hús í Fjarðabyggð verið endurbyggð þannig að til fyrirmyndar er. Má í því sambandi nefna hús í eigu Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og Jensenshús á Eskifirði. Þá ber einnig að geta þess að Húsafriðunarnefnd veitti nýverið styrk til endurbyggingar gömlu kirkjunnar á Eskifirði sem nú er í einkaeign.


Ummæli lesenda  
 

Álitsgjöf

 

Sýna 5 af 5 Ummæli

1. 13-05-2010 19:53

fagnaðarefni
Það er ánægjulegt að ákvörðun hafi verið tekin um endurbyggingu á þessu merka húsi. Það er engi efi í mínum huga að þessi ákvörðun og fleiri sem eru teknar og eru tryggðar fjárhagslega eru liður í uppbyggingu ferðaþjónustu og varðveislu sögu okkar sem sem allra best. Þetta hús á sér merka sögu sem er hluti af því sem hefur verið byggt upp sem saga Fáskrúðsfjarðar það tímabil franskra sjómanna hér við land. Auðvita á að huga að sem flestu í okkar fortíð og það er og hefur verið unnið mjög vel í þessum málaflokki 
Björn Grétar Sveinsson
björn grétar sveinsson

2. 13-05-2010 16:46

´Gamla kirkjan á Eskifirði
Ég bendi á frétt um málið á Smugunni 10. maí og grein á Eyjunni fyrir nokkrum dögum.
Hilda Birgisdóttir

3. 10-05-2010 01:06

Þýðandi
Ég bendi á grein á eyjan.is undir Lúgan sem fjallar um stöðu gömlu kirkjunnar á Eskifirði. Það væri gaman að fá ummæli. Bestu kveðjur, Hilda Birgisdóttir
Hilda Birgisdóttir

4. 17-04-2010 01:29

Þökk sér þér Smári fyrir góð skrif
Það var merkileg lesning grein Elmu í Austurgluggnanum um endurbyggingu gamalla húsa í Fjarðabyggð. En mikið er gott að til eru menn sem vita betur en hún, greinilega hefur hún ekki kynnt sér málin nógu vel. Það er nefnilaga svo stutt síðan hún fór að tjá sig um hrepparíg milli Héraðs og Fjarðabyggðar í ummælum sem ég skrifaði um sjómannafslátt og fl. Það er svo mekilegt að í öllum hennar skrifum heldur hún enn að Neskaupsstaður sé höfustaður Austurlands og þar skuli allt vera í forgangi. Það vil svo til að nú er Neskaupsstður hluti af Fjarðabyggð og jafnt skal yfir alla ganga. Á Eskifirði eru líka hús sem við viljum varðveita, t.d. gamli skólinn, kirkja, rafstöðin og örugglega fleiri. Til að eyða öllum hrepparíg milli bæjarhluta Fjarðabyggðar eru svona skrif ekki til bóta, en þökk sé Smára fyrir hans góðu skrif í Austurgluggann. Smári er okkar besti bæjarfulltrúi og trúverðuagsti um  
árabil og hann er ekki sá sem elur á sundrungu eins og marir sveitungar hans norða Oddskarðs gera því miðu enn í dag.
Grétar Rögnvarsson

5. 12-04-2010 12:37

Nöldur og nagg
Mikið er gaman að sjá að kjörnir fulltrúar leiðrétta villuvaðal í blaðagreinum, sem virðast einungis skrifaðar í þeim tilgangi að ala á sundrung og leiðindum og öllum staðreyndum er snúið á haus.  
Vonandi eru þvílík skrif að leggjast af.
Íbúi í SAMEINAÐRI Fjarðabyggð

Sýna 5 af 5 Ummæli

Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2012 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved
< Fyrri   Næsti >

feed image