Þegar stjórnmálamennirnir stálu íbúafundinum PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Gunnar Gunnarsson   
fimmtudagur, 09 september 2010
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 09 september 2010 )
 

gunnarg_web.jpgÞað var rétt þegar maðurinn líkti stjórnmálamönnum við beljurnar – þegar ein þeirra pissar er annari mál. „Þegar einn stjórnmálamaður hefur tekið til máls þurfa þeir allir að tala.“

 

Ég hef áður gagnrýnt fundi sem boðað er til undir þeirri yfirskrift að grasrótin eigi að tala en stjórnmálamennirnir „stela“ fundunum. Og stjórnmálamennirnir tala svo mikið að þegar þeir hafa lokið sér af hafa þeir svæft áhuga fundargesta og tíminn er á þrotum.

Sem er nákvæmlega upplifun mín af íbúafundinum á Stöðvarfirði um daginn. Fundinum þar sem ræða átti lokanir bankans og pósthússins – og framtíð í atvinnumálum staðarins.

En um leið og orðið var gefið laust stökk fyrsti bæjarfulltrúinn á það. Síðan kom næsti oddviti, annar maður á lista, þriðji maður á lista, fyrsti þingmaður, annar þingmaður, þriðji þingmaður! Allir kröfðu hvern annan um svar áður en þeir luku máli sínu á orðunum „en ég kom nú fyrst og fremst hingað til að hlusta.“

Á hvað? Á svarið sem þú vilt heyra frá þingmanninum (sem þú veist að hann er ekkert að fara að svara þér) eða félaga þinn úr bæjarráðinu?

Eða Stöðfirðinga?

Í þeim heyrðist vart múkk. Nokkrir risu úr sætum sínum og skutu á starfsmann Póstsins, sem ólíkt kollegum sínum hjá Landsbankanum, þorði að mæta austur í ljónagryfjuna. Slík var tryggðin við viðskiptavini til margra ára.

Þótt hinir póltísku fulltrúar væru sennilega aðeins um 10% fundarmanna má ætla að þeir hafi verið með um 90% ræðutímans.

Lega Hringvegarins var þessum stjórnmálamönnum sérlega hugleikin, framtíðarlyftistöng Stöðvarfjarðar, útvarðarins í suðri.

Samkvæmt minnispunktum mínum tóku tveir heimamenn þátt í þeirri umræðu. Annar sagðist hafa löngum stutt færsluna af öryggissjónarmiðum. Hinn spurði um atvinnusköpun á Stöðvarfirði, færslu opinberra starfa þangað og bætti við „þjóðvegurinn skapar ekki störf.“

Því miður kom fyrirspurnin, sú besta á fundinum, heldur seint fram til að hún væri rædd af viti.

En nægur var tíminn fyrir oddvita meirihlutaflokkanna til að semja og fá samþykkta álytun um færslu Hringvegarins.

Nú ætla ég Stöðfirðingum ekki að vera ósammála ályktuninni eða efni hennar. Ég ætla heldur ekki að taka afstöðu til málstaðarins. Þeir verða samt að taka málin í eigin hendur, álykta sjálfir, tala sjálfir í stað þess að láta tvo bílfarma af nyrðri fjörðunum og einn af flugvellinum á Egilsstöðum yfirgnæfa sig.

Og stjórnmálamönnunum vil ég benda á það sem einhvern tíman var reynt að kenna mér: Það er ástæða fyrir að við höfum einn munn en tvö eyru.


Ummæli lesenda  
 

Álitsgjöf

 

Sýna 1 af 1 Ummæli

1. 15-09-2010 10:10

Góður pistil, - framan af.
Ég er mjög sammála lýsingu pistlahöfundar á pólitíkusum. Þeir verða yfirleitt óþolandi á fundum, sér í lagi eins og þeim sem hér er lýst. 
 
Ég var ekki á þessum fundi og veit því ekki um “bílfarma” sem pistlahöfundur er að fjalla um. Ég átta mig ekki heldur hverju hann er að vara Stöðfirðinga við, að láta ekki “yfirgnæfa sig”. Í hverju? Í að óttast um atvinnu og fólksflótta eða taka sjálfstæða ákvörðun um og álykta sjálfir um færslu hringvegarins, - eða ekki?  
 
Pistlahöfundur verður að vera skýrari í því hvað hann meinar. Stöðfirðingar færa ekki hringveginn þó Jens Garðar sé tilbúinn í að borga skiltin. Þjóðvegur 1 verður ekki færður við það eitt að kjörnir fulltúrar í Fjarðabyggð álykti um það. Það verða að vera gild rök fyrir færslu, - ekki “af því bara”.  
 
Þar sem piltlahöfundur er kominn í þennan heilaga, hlutlausa gír, ætti honum ekki að verða skotaskuld úr því að fara á hlutlausan og yfirvegaðan hátt yfir það, og birta, hver ávinnungurinn sé við það að færa hringveginn. Kanna hvar þjóustan er sem þeir eru hvað mest að sækja í. Kanna hvaða stytting hefur mestu áhrifin á fjórðunginn í heild og að hluta, skoða í samhengi hvernig íbúar hans komist á sem fljótlegastan og þægilegastan hátt á milli staða, - óháð vegnúmerum.  
 
Kemur þá einmitt ekki í ljós það sem einn fundarmanna sagði, “þjóðvegurinn skapar ekki störf”.
pelli

Sýna 1 af 1 Ummæli

Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2012 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved
< Fyrri   Næsti >

feed image