Sérgreinalæknar frá Landsspítalanum manna heilsugæslustöðina á Eskifirði

Úrslit 41 - 41 af 41

41. 01-03-2010 11:20

Afturför
Austurglugginn heldur áfram blindum stuðningi við stjórn HSA gegn íbúum Fjarðabyggðar, sunnan Norðfjarðar. 
 
Í ofangreindri, fáfróðu frétt, leggur Austurglugginn að jöfnu hafa sérfræðilækni í svæfingum og hins vegar sérfræðing í heimilislækningum. 
 
Ég álykta að að það yrði uppistand ef ráðinn yrði háls- nef- og eyranalæknir til að sinna svæfingum á FSN. Með þessu er ég ekki segja að þetta annars ágæta fólk sem kemur hingað þessa daganna séu vel menntaðir læknar , sem vilja hlúa að okkur íbúunum í neðra, er bara segja, undirstrika það að það er er búið eð eyðileggja heilsugæslu í þeirri mynd sem við höfðum.  
 
Svo það fari nú ekkert á milli mála, þá að þá er ég ekki að hnýta í það ágæta fólk sem vinnur í heilsugæslunni.  
 
En stjórn HSA, þau Einar Rafn, Haraldsson, Lilja Aðaðsteinsdóttir og Stefán Þórarinsson eiga að taka gagnýrnina á sig. Þeirra ábyrgð er mikil, og ef það væri einhver manndómur í þeim ættu þau öll að segja af sér.  
 
Vandamálið er hins vegar það að þau axla ekki ábyrgðina á því skemmdarverki sem unnið hefur verið. 
 
Það getur vel verið að þetta nýja fyrirkomulag nýtist þeim á FSN vel en það er ekki 
að breyta neinu fyrir okkur íbúana sem höfum þurft að hafa afleysingamenn í 
tugatali síðasta ár og er greinilegt að svo verður áfram. 
 
Eins gekk það algjörlega fram af mér að lesa dreifibréfið frá þeim Lilju og 
Valdimar þar sem kemur fram að æskilegast væri að læknir hefði fasta búsetu á 
staðnum. Á Eskifirði býr flinkur og vinsæll læknir, Hannes Sigmarsson með lögheimili og stóra fjölskyldu!!!!! 
 
Fólkið þekkir Hannes og hann fólkið. Sá mikli stuðningur sem Hannes hefur fengið frá almenningi er einstakur. Stjórn HSA hefur rekið heimamanninn Hannes og líka Sigurgeir Höskuldsson sem ætlaði að eiga heima í Fjarðabyggð ásamt sinni fjölskyldu. 
 
Margir sem lásu þetta dreifibréf höfðu á orði að þarna væri einhver að misnota 
aðstöðu sína í atkvæðaveiðum vegna komandi sveitarstjórnakosninga og það í boði HSA.
Austri
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Til baka í greinina | Skrifaðu ummæli...



mXcomment 1.0.6 © 2007-2012 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved

feed image