Ritstjórinn og stjórnarformaðurinn taki pokann sinn
þriðjudagur, 18 mars 2008

Í Austurglugganum sem kemur út á morgun birtist harðorð grein Aðalsteins Jónssonar í Klausturseli í Jökuldal og Sigurðar H. Jónssonar á Mælivöllum í Jökuldal. Þar varpa sveitungarnir fram harðri gagnrýni á ritstjóra og stjórnarformann Austurgluggans og segja blaðið rúið trausti. Í heilsíðugrein sinni vilja þeir meina að ritstjórinn, Einar Ben Þorsteinsson, sé málpípa stjórnarformannsins Sverris Þórs Albertssonar. Í greininni er klikkt út með orðunum "Nú er nóg komið, það er kominn tími til að ritstjórinn og stjórnarformaður útgáfufélagsins taki pokann sinn til að hresa upp á trúverðugleika og traust á blaðinu." Jafnframt fara þeir fram á að ritstjórinn og stjórnarformaðurinn biðjist afsökunar áður en þeir láti af störfum.

Ástæða skrifa Aðalsteins og Sigurðar er fréttaflutningur Austurgluggans af skemmtiatriðum á Þorrablóti Jökuldælinga og Hlíðamanna. Í frétt um málið nafngreindi ritstjóri Austurgluggans mann í skemmtinefnd sem hafði verið dæmdur í skilorðsbundið 30 daga fangelsi fyrir kynferðislega áreitni. Jafnframt sagði Austurglugginn manninn hafa tekið þátt í skemmtiatriðum um afbrot sitt á umræddu Þorrablóti. Ennfremur var sagt frá því að söngdagskrá þorrablótsins hafði verið klippt út í líki brjóstahaldara og í það látið skína að um væri að ræða nærhöld fórnalambs kynferðislegrar áreitni þorrablótsnefndarmannsins.

Í framhaldinu mótmæltu nokkrir Jökuldælingar fréttaflutningi blaðsins, en ritstjórinn neitaði að biðjast afsökunar á fréttinni og kvaðst standa við hana. Stjórnarformaður Austurgluggans, Sverrir Már Albertsson, skrifaði í framhaldinu harðorða grein um málið þar sem hann lýsti yfir stuðningi við ritstjórann og fór hörðum orðum um skemmtiatriði á þorrablóti Jökuldælinga og Hlíðamanna.

Úr áskriftardeild Austurgluggans fást þær upplýsingar að alls hafi sex áskrifendur sagt upp blaðinu vegna þess máls. "Samt sem áður hefur áskrifendum fjölgað milli vikna." segir Erla Einarsdóttir starfsmaður Austurgluggans.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 september 2008 )