Austfirskur fréttaannáll 2014 - Nóvember
Article Index
Page 12 of 13
Nóvember:Umræða var um vopnaburð lögreglu um allt land. Í fórum austfirskra lögregluþjóna reyndust skammbyssur og kindabyssur.
Upplýsingamiðstöð Austurlands var lokað vegna fjárskorts hjá Austurbrú. Í framhaldinu fór af stað samtal og endurskoðun á framtíðarfyrirkomulagi miðstöðvarinnar.
Garnaveiki greindist á bæ í Hróarstungu. Fljótt kom í ljós að hún var víðar. Brugðist var við með víðtækri bólusetningu.
Austfirska verkefnið Designs from Nowhere hlaut Hönnunarverðlaun Íslands og nokkrum dögum síðar hlaut LungA-skólinn á Seyðisfirði nýsköpunarverðlaun Morgunblaðsins meðal austfirskra fyrirtækja. Fyrr á árinu hlutu ábúendur í Fossárdal í Berufirði Landbúnaðarverðlaunin.
Fimm blaklið af höfuðborgarsvæðinu hótuðu að vera ekki með ef forkeppni bikarkeppninnar yrði haldin í Neskaupstað vegna bágrar fjárhagsstöðu og ferðakostnaðar en buðust þess í stað til að borga undir Þróttarliðið suður. Fleiri slík tilvik komu í ljós. Flest liðin skiluðu sér hins vegar austur.
Þrír Austfirðingar tóku þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum sem haldið var með glæsibrag í Laugadalshöll.