Austfirskur fréttaannáll 2014 - Júní
Article Index
Page 7 of 13
Júní:Nýr meirihluti var myndaður á Vopnafirði þar sem Betra Sigtún valdi K-lista og skildi framsóknarmenn eftir eina í minnihluta.
Á Fljótsdalshéraði slitnaði upp úr meirihlutaviðræðum Framsóknarmanna og Á-lista. Framsóknarmenn reyndu að koma á samstarfi allra framboðanna fjögurra í bæjarstjórn. Sú hugmynd var andvana fædd og hin framboðin þrjú mynduðu meirihluta án framsóknar.
Helgi Hallgrímsson, náttúrufræðingur á Egilsstöðum var sæmdur fálkaorðunni. Smári Geirsson, sagnfræðingur í Neskaupstað, hafði hlotið hana fyrr á árinu.
Flutningaskipið UTA var kyrrsett í Mjóeyrarhöfn og tók nokkrar vikur að greiða úr málinu þar sem skipafélagið var gert gjaldþrota.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands gerði athugasemdir við að kjöt sem framleitt hefði verið í Ástralíu hefði fengið verið stimplað í Hollandi rétt fyrir síðasta söludag og selt áfram til Íslands með nýjum stimpli. Kjötið átti að vera á borðum í mötuneyti Fjarðaáls.
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði festi kaup á nýju Hoffelli sem kom frá Noregi.
Héraðsskjalasafn Austurlands opnaði ljósmyndavef með gömlum myndum. Austfirðingar tóku vel í vefinn og voru duglegir að deila myndum og minningum á samfélagsmiðlum.